Björg - Björgu - Björgu - Bjargar
Ellú, ellúúúú....Björg
Hendi inn hér örbloggi, fyrir þá sem nenna að lesa þetta fremur sorglega blogg mitt.
Við erum loksins flutt inn í Kolding aftur og erum við yfir okkur ánægð á nýja staðnum. Ekki nóg með að vera í bjartri og huggulegri íbúð, þá erum við með miðbæinn í 10 mínútna göngufæri og Marielundskóginn hinum megin við hornið (finnst yndislegt að rölta þar um með krakkana eftir vinnu...svo afstressandi!).
Við stöndum aftur á móti í streði við fyrrverandi leigusala okkar, þessari sem á húsið í Almind. Konuræfillinn hefur sennilega týnt geðlyfunum sínum á einhverju fylleríinu sínu, því aldrei hef ég upplifað og heyrt aðra eins geðveiki.
Í stuttu máli sagt, þá vill hún endurnýja allt inni í húsinu...teppi, kamínu, veggi, flísar, uppsetningu á gardínum ásamt öðru tilfallandi...á okkar kostnað.
Við munum því standa í málaferlum næstu vikurnar/mánuðina til að stoppa hana af.
Mottóið mitt er því þessa dagana: "Það sem drepur þig ekki, mun aðeins gera þig sterkari"!!
Annars eru allir sprækir og við góða heilsu, er það ekki það sem maður á að gleðjast mest yfir?!
Ég er byrjuð að vinna fullan dag núna og er ánægð með það, er ekki þessi "hanga-heima" týpa, fer algjörlega úr kerfi ef ég hef ekkert að gera á daginn og ekki nenni ég að þvo þvott og þrífa alla daga ;O)
Jahérna hér...Björg
...vissi ekki að bloggsíðan mín væri með auglýsingadálk hér til hliðar, eða öllu heldur það sem á að heita Gestabók.Fólk hlýtur að vera orðið frekar desperat þegar það ákveður að setja inn auglýsingu á notaða bílnum sínum, á gestabækur bloggsíðna. En jú, neyðin hlýtur að kenna konum að auglýsa bílana sína á furðulegastan hátt...þessi kona sem klíndi auglýsingunni sinni inn á gestabókina mína sagðist, and I quote, "VERÐA að selja bílinn sinn því hún væri einstæð þriggja barna móðir"...punktur! Ætli einhver sjái aumur á henni og kaupi bílinn því hún er einstæð?? :)
Anyways...margt hefur gerst í þessu koti síðan síðast...engin lognmolla hér á ferð!
Sökum slæmrar stöðu fyrirtækisins sem ég vinn hjá, þá hef ég verið beðin um að fara aftur í fæðingarorlof, taka sumarfrí í kjölfarið af því og athuga eftir það hvort ég fái að koma aftur til vinnu eður ei.
Ég á tæpa 2 mánuði eftir af fæðingarorlofinu mínu, þannig að það er jú auðvitað gott að geta rumpað því af, í staðinn fyrir að standa uppi launalaus og í óvissu með framhaldið.
Ég hef eiginlega ákveðið mig að fara í skóla í haust og klára Bs-gráðuna í viðskiptafræðunum, er búin að skrá mig en fæ að vita síðar í mánuðinum hvort ég komist inn.
Það er frekar hæpið að maður finni góða vinnu á þremur mánuðum í dag, þannig að því ekki að liggja með nefið í bókunum meðan versta krísan gengur yfir (við vonum það allaveganna) og koma tvíefldur inn á vinnumarkaðinn aftur?!?
Eitt er allaveganna víst...ég mun njóta það sem eftir er sumars í botn með ungunum mínum og kalli (þegar hann er heima þ.e.a.s.) ;O)
Maja þroskast á ljóshraða og er að fá framtennurnar í efri góm niður þessa dagana. Hún er ofuránægð hjá dagmömmunni og brosir breitt í hvert sinn sem við komum til hennar. Hún er ekki farin að skríða, en hún hossar sér áfram á bossanum og mjakar sér einhvern veginn í átt að því sem hugurinn girnist. Hún er aðeins að byrja að toga sig upp með stofuborðinu og í rimlarúminu sínu...verður sennilega ekkert langt í að hún fer að standa upp og ganga meðfram hlutum.
Guttarnir eru glaðir og hressir, eins og ávallt.
Nú styttist í að Kristófer byrji sína skólagöngu, byrjar 10. ágúst n.k. í 6 ára bekk, og er að vonum mjög spenntur.
Leó hlakkar mikið til að fá hann í skólan, og á eftir að sýna litla bróður sínum eflaust margt!
Við erum á höttunum eftir öðru húsnæði að búa í, og erum búin að segja upp leigunni á þessu húsi sem við erum í núna. Þurfum að vera flutt héðan út viku fyrir mánaðarmótin ágúst/september, þannig að húsleitin er í fullum gangi. Ætlum að flytja aftur inn til Kolding...og ég hlakka til! Spennó, spennó :)
Harpa, Óli og púkar eru búin að vera hér í Kolding núna í tvær vikur, og eru á heimleið í dag. Búið að vera æðislegt að hafa þau svona nálægt og verður eflaust erfitt að kveðja í dag!! Finnst kveðjustund á lestarpallinum leiðinleg og erfið...en well, svona er þetta víst...allt tekur enda.
Við fengum Möggu frænku og Pétur Thor son hennar í heimsókn í vikunni, ofsalega gaman að hitta þau aftur! Þetta var sannkölluð "roadtrip" hjá þeim, ferjan tekin frá Svíþjóð og Jótlandið keyrt í ræmur ásamt dagsferð í Legoland. Héðan var svo ferðinni heitið til Köben og þaðan uppeftir til Svíþjóðar á ný...bara frábært hjá þeim! ;)
Næsta blogg eftir mánuð (ef marka má normið á þessari bloggsíðu)...ef ykkur langar að auglýsa bílana ykkar, notuð föt eða eitthvað enn meira krassandi....ekki gera það þá hér!
Auglýsingasíður eru sérstaklega gerðar til þess..... :)
Öpdeit af okkur...Björg


Síðasta færsla var skrifuð í vetrarfríinu og í dag er Sumardagurinn fyrsti...þetta eru orðin árstíðabundin skrif hér hjá mér ;)
Af okkur er allt hið fínasta að frétta annars, ekki mikið sem gerist svo sem frá degi til dags hér í litla Almind, en okkur líður amk vel, engin veikindi og allir sprækir.
Veðrið hér er þvílíkt búið að leika við okkur undanfarna daga, eða frá því um páskana, það er nánast sól og 15-18°c hiti á hverjum degi, ekki hægt að kvarta yfir því! Við erum búin að vera dugleg í garðinum, Flemming þá aðallega, við að reyta arfa úr beðunum og er Flemming búinn að stinga upp reitinn hér bak við hús og ætlum við að troða kartöflum þar niður. Mmm...verður gaman að sjá uppskeruna í enda sumars ;O)
Páskarnir voru ofsalega ljúfir, tókum lífinu með stóískri ró og höfðum það kósý hérna heima ásamt Leó og Kristófer. Guttarnir fengu auðvitað að hafa fyrir páskaeggjunum og voru reknir snemma á Páskadagsmorgun út í garð í leit að eggjum. Tók þá enga stund að finna þau og voru auðvitað ánægðastir með súkkulaðieggin sín (sem hurfu ofan í þá á mettíma). Við skruppum svo í stutta labbitúra, í bíó og voru strákarnir duglegir að leika úti...bara hið ljúfa líf!
Ég byrja að vinna í næstu viku (1. maí)! Finnst alveg ótrúlegt að fæðingarorlofið mitt sé að verða búið og daglegt púsluspil með að senda, sækja, vinna og sinna heimilinu sé að hefjast á ný.
Ég er þó spennt að byrja aftur og finn það að það er kominn tími á félagsleg samskipti fullorðna af minni hálfu, tala nú ekki um meiri pening útborgaðan á mánuði, þannig að það verður bara gaman að byrja aftur að vinna. Við erum reyndar ekki ennþá búin að fá dagvistunarpláss fyrir Maju, en það er víst bréf á leiðinni frá Kommúnunni með tilboði um pláss (Flemming hringdi í morgun og spurðist fyrir um stöðu málsins), svo öll von er ekki úti enn!
Maja dafnar eins og blómi í eggi og er núna komin með tvær tennur í neðri góm. Hún hefur verið ansi pirruð undanfarið, sennilega vegna tanntökunnar, og sofið illa, bæði á daginn og næturna. Skottan er farin að sitja sjálf og getur dundað sér sjálf á gólfinu í lengri tíma með dótinu sínu, sendir manni bara sætt bros ef maður talar til hennar og heldur áfram dundinu.
Hún dansar af lífs-og sálarkröftum þegar maður kveikir á útvarpinu og tekur svo hátíðni-aríurnar þess á milli, mikil músík í henni ;O) Ofsalega gaman að henni!!
Ætla að setja inn nýjar myndir í myndaalbúmið hér til hliðar, endilega kíkið á!
Gleðilegt sumar!
Vetrarfrí og huggulegheitBjörg
Já, vetrarfrí var í skólum í síðustu viku og guttarnir eyddu henni hér hjá okkur. Þetta var algjör letivika, Flemming var í fríi og Victor dvaldi hér hjá okkur fram til miðvikudags. Nutum þess að "hugga" okkur hér heima, spila spil, lita í litabækur og bara viðra tærnar sem voru hátt á lofti.Ekki skemmdi það ánægjuna fyrir strákunum þegar þeir uppgötvuðu snjóinn sem fallið hafði eina nóttina, og næstu nótt líka, og er enn. Það var stokkið út í garð og rúllað upp í einn snjókall og farið í snjókast. Ekki fékk snjókarlinn að standa lengi...þetta eru tippikal guttar sem við eigum og leika sér nákvæmlega eftir þeirri uppskrift...snjókarlinn var "rústaður" á nokkrum mínútum og mikið hlegið.
Verður gaman að sjá þegar litla systir þeirra fer að draga þá út í snjókallagerð og englamynstursgerð...ætli þeir fái nokkuð að eyðileggja þá?! :o)
Hitti IBA-skutlurna mínar um daginn, Rósu og Sigrúnu, og gátum við kjaftað og hlegið saman í smá tíma.
Vorum að rifja upp klassískan tungumála-misskilning hjá aðfluttum Íslendingum, okkur sjálfum og öðrum sem við könnuðumst við...getum alltaf hlegið að þessu!
Stuttu eftir að við komum hingað út þá sátum við skvísurnar á kaffihúsi, Harpa, Rósa, Sigrún og ég. Harpa var þá sterkust af okkur í dönskunni og eitthvað þurftum við að ná í þjóninn á staðnum. Harpa veifar því til hans og kallar "undskyld"...eftir smá þögn við borðið þá ákveður ein okkar að spyrja Hörpu hvað "kús kús" þýði eiginlega því það var nákvæmlega það sem hún kallaði til þjónsins ;O)
Að versla gat líka farið illilega með skilninginn á þessum tíma og þá iðulega ef maður greiddi vöruna með korti. Afgreiðslufólkið spyr nefnilega alltaf hvort það eigi að draga akkúrat upphæðina sem varan kostar af kortinu (maður getur jú beðið um x-upphæð umfram og fengið hana greidda) og spyr því "på beløbet?" Það virðist vera ótrúlegt hvernig heili manns vinnur úr orðum sem maður skilur ekki, og hvernig þau hljóma í manns eigin eyrum...við gátum því undrast yfir því hvað afgreiðslufólk í búðum meinti þegar það sagði "blúbb blúbb" við okkur.
Það er þó eitt sem alltaf er hægt að hlægja að, og er það þegar ein skvísan fór í apótekið og vantaði eitthvað við brjóstsviða. Hún spurði því starfsmann apóteksins um eitthvað við "brystsvede"...þægilega einföld þýðing beint úr íslenskunni.
Brystsvede þýðir aftur á móti "sveitt brjóst" og brjóstsviði er "halsbrand" á dönsku....það var því frekar skrítið upplitið á starfsmanni apóteksins þegar hann átti að bregðast við þessari beiðni. ;O)
Setti inn myndir frá vetrarfrísvikunni okkar hér á bloggið...kíkkið á!
Enn eitt árið...Björg
Þá er maður komin með 38 grá hár á hausinn...eitt fyrir hvert ár ;O)Nei, ætli þau séu nú ekki fleiri, falin bak við úrvals Loréal heimatúttu-háralit. Átti alveg yndislegan afmælisdag með Flemmsa og Maju, guttarnir voru hjá pabba sínum þannig að þeir voru fjarri góðu gamni. Þetta var hinn rólegasti dagur svo sem, enda er maður ekkert lengur hoppandi spenntur yfir að bæta ári við aldurinn...hehe. Ég fékk súkkulaðiköku með kaffinu, kossa og knús, æðislegan kvöldmat, eldaðan af bóndanum, og æðislegar gjafir...bara ljúft!
Kærar þakkir fyrir allar kveðjurnar, þið sem senduð...bara sætt af ykkur :o)
Ég gerði þrjár tilraunir til að hringja í heimilislækninn minn í dag og fá fluttan tíma í 5 mánaða skoðun Maju. Ekki svo sem í frásögur færandi, nema að fyrst þegar ég hringdi þá var ekki búið að opna, í annað sinn þá var morgunkaffi og síminn ekki tekinn og í það þriðja þá var hádegismatur og starfsmannafundur og þar af leiðandi lokað fyrir símana.
Stofunni er svo lokað um kl. 16 á daginn....hahaha. Það er eins gott að maður fylgist með klukkunni þegar maður ætlar að hafa samband!
Við höfum sem betur fer sloppið við þessa flensu sem hefur herjað allsvakalega á landann. Í síðustu viku var talað um flensufaraldur í landinu, allar læknavaktir stútfullar af horuðu og slöppu fólki og mjög margir sem maður talaði við voru búnir að liggja í rúminu. Ætla rétt að vona að við sleppum við þetta ógeð...7-9-13!!
Annars eru allir í góðum gír hér á bæ og ekkert nýtt títt svo sem.
Setti inn nýjar myndir á síðuna hennar Maju...endilega kíkkið ;O)
Tíminn flýgur...Björg
Já, það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur hratt...mér finnst ég vera nýstaðin fram úr rúminu þegar það er komið kvöld aftur og ég þarf að leggjast í það aftur. Minnir mann óneitanlega á bíómyndina "Groundhog day", dagarnir hérna renna eiginlega saman í eitt, mér finnst ég alltaf vera að gera sömu hlutina og er farin að missa út hvaða vikudagur er og dagsetning. Svona á þetta kannski að vera þegar maður er heima með kríli...kannski bara spurning um að njóta þess meðan er? ;o)Anyways, ég skrapp niður í vinnu um daginn og ræddi við þau í sambandi við það að byrja aftur. Var búin að tala við Kommúnuna í sambandi við það hve langt fæðingarorlof ég ætti eftir hjá þeim, og svo virðist vera að ég á inni hjá þeim 6 mánuði frá og með 16. janúar (eða í gær). Þannig að ég er búin að gera díl við vinnuveitendurna mína, ég byrja að vinna aftur 1. maí og vinn hálfan daginn fram til jóla/áramóta. Ef þeir sjá fram á brjálaðan tíma á þessu tímabili, þá verður samkomulagið rætt aftur og ég get þá geymt þær vikur sem ég á eftir af orlofinu og notað einhvern tíman þegar ég vil áður en Maja verður 9 ára ;O)
Akkúrat núna er mjög rólegt í vinnunni og þeir sjá ekki fram á neitt brjálæði fyrr en í fyrsta lagi í haust...og jafnvel seinna...þannig að þetta fyrirkomulag er gott fyrir báða aðila.
Ég bæði hlakka til að byrja að vinna aftur og ekki. Neita því ekki að það verður ljúft að geta komist út meðal fullorðinna í 5 tíma á dag og eiga þá restina af deginum eftir til að stússast með Maju og njóta dagsins með henni. Hef aldrei prufað áður að vinna hálfan daginn með lítið barn, verður ábyggilega mjög ljúft :O)
Leó er núna byrjaður í nýjum skóla og líkar mjög vel. Hann fluttist úr Bakkeskolen yfir í Ålykkeskolen, og núna er miklu styttra fyrir hann að fara í skólann og styttra fyrir okkur líka, þar sem leikskóli Kristófers er hinum megin við götuna.
Ég fór í gær og skráði Kristófer inn í þann skóla líka og byrjar hann 10. ágúst í 6 ára bekk.
Er líka búin að sækja um vöggustofupláss fyrir Maju á vöggustofunni sem Kristófer byrjaði á (og er á sama stað og leikskólinn)...vona bara innilega að hún fái pláss þar!!!
Við erum núna búin að láta húseigandann vita að við ætlum að flytja héðan. Nú bíðum við eftir að fá svar frá honum hvernig hann ætli sér að hafa hlutina, hvort húsið verði leigt út aftur eða hvort hann ætli að flytja inn sjálfur. Við verðum að hafa á hreinu varðandi það hvort við þurfum að vera hérna út uppsagnafrestinn (3 mánuði) eða hvað, upp á að geta farið á fullu í það að finna annað húsnæði.
Viðurkenni það alveg að ég er ofsalega spennt að flytja aftur inn í Kolding...ekki að það sé neitt ömurlegt að búa hérna, langt frá því. Bara tilhugsunin um að geta labbað niður í bæ eða kíkt í heimsókn til vina og fengið sér eins og einn öl án þess að þurfa að vera á bílnum, er ansi spennandi. Og þó við gerðum okkur jú alveg grein fyrir því að maður yrði meira háður bílnum og að við það yrði aukinn bensínkostnaður, þá bjuggumst við aldrei við svona himinháum hita-og vatnskostnaði eins og er hér...við erum að borga aukaleigu nánast þriðja hvern mánuð! Við spurðum auðvitað húseigandann um þennan kostnað áður en við fluttum en fengum allt annað svar en það sem við erum búin að upplifa.
Svo jamm...framundan er s.s ódýrara húsnæði og minni bensínkostnaður, ekki veitir af að skrúfa aðeins fyrir kostnaðinn á þessum síðustu og verstu tímum ;O) Þrátt fyrir að vinna hálfan daginn og fá dagpeninga frá Kommúnunni þá munar það ekki svo miklu á útborguðum launum, fæ nánast það sama út og í 100% vinnu. Það verður reyndar annað uppi á teningnum frá og með mánudeginum og þangað til ég byrja að vinna...fæ þá fulla dagpeninga og ekki er það há upphæð á mánuði eftir skatt. En svona er þetta bara!!
Ég er búin að fjárfesta í prjóna-og heklbók og ætla núna að taka upp heklunálina eða prjónana, eftir langan tíma á hillunni. Ætli Maja verði ekki tilraunadýrið til að byrja með, æfi mig í sokkaprjóni eða húfuhekli svona fyrst ;O)
Knús í bili....
2008 - 2009Björg

Nýtt ár byrjað og það gamla sprungið í loft upp ;O)
Mér finnst þessi tímamót alltaf smá skrýtin og sú hugsun að nýtt ár sé komið með nýjum upplifunum til að takast á við gerir mig bara spennta og forvitna. Það mun allaveganna vera nóg að gera á þessu ári og margt sem ég á eftir að takast á við; Maja mun þroskast og vaxa mjög hratt á þessu ári, Kristófer mun byrja í skóla næsta sumar, ég byrja aftur að vinna í vor, Leó skiptir jafnvel um skóla og margt fleira sem við eflaust eigum eftir að upplifa.
Ég tók á móti árinu 2008 með blendnum tilfinningum; spennu, eftirvæntingu og smá kvíða.
Við vorum nýbúin að komast að því að ég væri ólétt og var líðanin heldur betur slæm þá, morgun-, miðdags- og kvöldógleði réð ríkjum og hélt sínu striki næstu 14 vikurnar. En spennan og eftirvæntingin yfir að eiga eftir að fá lítið kríli í hendurnar bráðum var gífurleg!
Flutningar tóku svo við í byrjun febrúar og vorum við ótrúlega fegin að losna úr partý- og stunuhúsinu mikla á Ottósgötunni, að flytja í einbýlishús var himnasending eftir að hafa hlustað á nágrannana alltof lengi og einnig tókum við auknu plássi fegins hendi, enda var orðið heldur þröngt um stórfjölskylduna í íbúðinni.
Ég sakna samt alltaf þessarar íbúðar, mér leið alveg ofboðslega vel í henni (lengst af tímanum sem ég bjó þar) og gat oft gleymt mér í eldhúsglugganum, horfandi yfir miðbæ Kolding og glápandi á marga furðufuglana sem áttu leið framhjá húsinu :o)
Í byrjun apríl fengum við Hörpu, Óla og Líneik í afslappelsis-heimsókn til okkar. Ofsalega gaman að fá þau og var mikið kjaftað og hlegið þessa fáu daga sem þau stoppuðu.
Fórum í 20 vikna sónarinn og ætluðum að fá að vita hvort það leyndist strákur eða stelpa í bumbunni, en krílið var ekkert á þeim nótunum að ljóstra því upp strax.
Tókum smá golfsyrpu í góða veðrinu og var frekar skrýtið að slá kúlurnar með aðra kúlu framan á sér :o)
Maímánuður skall á með hækkandi sól og hitastigi.
Mamma og Dúlla frænka komu í heimsókn til okkar og slógu þær golfkúlur á nærliggjandi golfvöllum eins og þeim væri borgað fyrir það, enda fengu þær æðislegt veður flestalla dagana sem þær voru hér.
Ég skellti mér með þeim einn daginn upp í Juelsminde, á einn af flottustu goflvöllum sem ég hef séð, og spilaði með þeim 11 holur...hætti þá því ég var orðin frekar lúin, enda komin 6 mánuði á leið.
Fórum í 3D sónar um miðjan júní og þá kom í ljós að von væri á lítilli skvísu. Mín hugsun varð því bleik "med det samme" og átti ég ofsalega erfitt með puttana á mér í búðum héðan af.
Strákarnir fóru svo í frí með pabba sínum og Kirstine til Íslands og náðu að heilsa upp á nánustu ættingja sína. Á meðan héldum við upp á afmæli Victors hér heima þar sem fjölskylda Flemmings kom til okkar í kaffi og kjaftagang.
Ég hætti að vinna um miðjan júlí, skikkuð í fæðingarorlof mánuði fyrir skráðan fæðingardag, sem ég tók fegins hendi. Hef aldrei upplifað það áður að vera ólétt í 25°c - 30°c hita, óbærilegt með öllu...suma daga hélt ég bókstaflega að ég væri á leið í gröfina. En þetta hafðist með því að halda sig innandyra, taka miðdegislúra, þamba vatn í lítratali og hafa tærnar uppi í lofti mest megnis af deginum. ;O)
Allt í einu var kominn ágúst og von var á krílinu í kringum 20. ágúst skv. sónar. Ekkert bólaði þó á litlu skvísunni þann tuttugasta, og virtist sem hún hafði það bara afar huggulegt í hlýjunni og örygginu.
Harpa og litli kútur í bumbu flugu hingað út til okkar þ. 25. ágúst, og var pælingin sú að ég væri þá sennilega búin að eiga, en allt var enn á rólegu nótunum. Við óléttínurnar þræddum því búðirnar, fórum í göngutúra, Harpa framkvæmdi svæðanudd á löppunum á mér í von um að koma mér af stað...en ekkert gerðist.
Það var ekki fyrr en á aðfaranótt 29. ágúst sem allt fór í gang og litla skottið leit svo dagsins ljós rétt fyrir hádegið sama dag. Fullkomin 15 marka og 52cm Maja Mist komin í heiminn :o)
September mánuður var tileinkaður barnastússi, kynnast nýja fjölskyldumeðliminu, sinna guttunum okkar og fá brjóstamjólkina til að streyma.
Byrjaði í mömmugrúppu hér í Almind og kynntist fjórum öðrum stelpum sem allar voru nýbúnar að eiga börn og ákváðum við að hittast tvisvar í mánuði....bara gaman að því.
Leó var ekki alveg sáttur við skólann sinn í október, og ákvað að taka völdin í sínar hendur hvað varðar mætingu í skólann. Það var því reynt mikið að finna út afhverju hann gerði þetta og mikið rætt við hann og skólann hvað þetta varðar. Hann hefur tekið sig á núna sem betur fer!!
Áætlaður lendingartími Hörpukúts var 10. nóvember og ég ákvað því að fljúga upp til Íslands með Maju þann 19. nóvember. Hugsaði með sjálfri mér að Harpa væri mjög líklega búin að koma litla kúti í heiminn á þessum tíma, en neibb...ekki vildi hann út. Við stoppuðum reyndar ekki nema í 6 daga og var því þeytingurinn mikill á milli húsa til að hitta sem flesta, samt sem áður alveg frábær ferð. Við náðum ekki að hitta litla kút þar sem hann ákvað að koma í heiminn kvöldinu áður en við lögðum af stað aftur heim, en sætur er hann á myndum!
Afmælisveislur, jólagjafakaup, huggulegheit, afmælisdagar guttanna minna og jólin hafa svo átt hug minn núna í desember, ásamt daglegu amstri eðlilega.
Þegar ég lít yfir farinn veg þá er þetta síðastliðna ár búið að vera áfallalaust og yndislegt í alla staði...megi það næsta verða jafn gott ef ekki betra ;o)
Gleðilegt Nýtt Ár
Letilíf og elsti grallarinn orðinn 11 ára...Björg
Leó Ingi varð 11 ára á Jóladag, ótrúlegt hvað tíminn flýgur! Bara 2 ár í fermingu...hólýmólý!Hann fékk fullt af æðislegum gjöfum og var ofsalega ánægður með allt saman. Takk fyrir guttann allir sem einn!
Búið að vera letilíf á hæsta stigi hér á þessu heimili, fyrir utan kannski Flemming greyið sem hefur þurft að vinna undanfarna daga. Eiga jólin ekki annars að vera svona...leti, át og kærleikur? ;O)
Alveg klassískt að maður hugsi með sér á þessum tíma árs að núna skal maður sko taka sig á hvað varðar hreyfingu og hollustu á nýju ári...held þetta sé innbyggt í mann að hugsa svona eftir nammiát og þungar máltíðir nokkra daga í röð. Hver veit nema maður fari að hoppa af sér varadekkin þegar birta tekur degi, lofa engu um að þau muni hverfa...en maður má allaveganna prufa að hrista þau aðeins.
Maja að skríða í fjórða mánuðinn og finnst mér hún vera að breytast og þroskast svo mikið núna. Svefnmynstrið hennar og matmálstímar eru að breytast líka, svo núna er þörf fyrir smá þolinmæði og útsjónarsemi hjá okkur foreldrunum, við erum orðin svo vön hennar fyrri rútínu og furðum okkur stundum á því að hún skuli vera svöng á þessum tíma og þreytt á hinum...haha. En af reynslunni þekkir maður þetta, þetta er bara fyrsta þroskastigið af mörgum og ótrúlega ört sem hlutirnir geta breyst á þessu fyrsta ári...jaaááá, ég er sko reynslubolti, þriggja kríla mútta núna ;O)
Heimsókn á bæjarskrifstofu Kolding er eitthvað sem ég þarf að byrja nýja árið á, ekki alveg mínar uppáhalds heimsóknir.
Ég þarf að sækja um pláss á vöggustofu fyrir Maju frá og með 1. maí n.k., og þarf í leiðinni að athuga hvort ég eigi rétt á dagpeningum hálfan daginn frá og með sama tíma. Hafði nefnilega hugsað mér að vinna hálfan daginn fram í byrjun september ef ég gæti. Er búin að fá grænt ljós frá vinnunni með það, en þarf að athuga hvort ég hafi efni á því. Kemur í ljós...
Þarf einnig að ræða við þau í sambandi við skólagöngu Kristófers næstkomandi haust, hann er skráður í skólann hér í Almind, en ég ætla að reyna að koma honum að í Ålykkeskole í Kolding. Ástæðurnar eru nokkrar fyrir þessarri pælingu...okkur langar að flytja aftur inn í Kolding og erum þvi með augun opin fyrir öðru húsnæði, skólinn er á næsta horni við vöggustofuna sem ég sæki um fyrir Maju og stutt frá heimili Viðars líka.
Og vitiði til....ég þarf ábyggilega að fara á þrjá staði til að finna út úr þessum málum...garg! Bæjarskrifstofur Kolding eru dreifðar um allar trissur og á hverjum stað er að minnsta kosti ein hundfúl og pirruð kerling sem fær það ekki reglulega....og hún afgreiðir mig :O)
Gleymdi alltaf að setja þetta hér inn, en myndir úr afmælum guttana getið þið séð með því að smella á þennan link http://picasaweb.google.com/vidaroddsson
Viðar var svo duglegur að taka myndir, mínar voru ekki nógu góðar og alltof fáar. Takk, takk Viðar ;O)
Skild' það vera jólahjól??Björg
Þá er Aðfangadagur runninn upp með tilheyrandi spenningi, pökkum og matarlykt.Þrír spenntir guttar sem bíða hér og spyrja sömu spurninganna aftur og aftur..."hvenær tökum við upp pakkana?", "hvenær borðum við?", "megum við ekki taka upp eina gjöf?". Já, það er erfitt að bíða ;O)
Allt að verða klárt hér í Egeparken og góður ilmur í húsinu núna. Strákarnir skreyttu tréð eftir kvöldmat í gær og röðuðu gjöfunum undir tréð. Við fengum okkur svo íslenska brúntertu og piparkökur á eftir...ossa huggulegt.
Jólasveinninn kom hér svo við í nótt, hans síðasta ferð með gott í sokkinn til strákanna og fengu þeir sameiginlega gjöf að þessu sinni, Disney Trivial spilið og smá nammigott líka...vakti mikla lukku auðvitað.
Ætlum að borða hamborgarhrygg og með því í kvöld, eftirrétturinn verður svo Ris a'la mande fyrir Flemming og ís fyrir okkur hin...mmmm!
Maja fær hirsigraut með banana og mun sennilega ekki kvarta. Hún er nýbyrjuð að fá smá graut á kvöldin og þvílíkar unaðsstunur með hverri skeið...haha...ég hef sjaldan heyrt annað eins :o) Hún dafnar eins og blómi í eggi, er farin að hlægja, purra og vindur upp á sig þegar hún liggur á leikteppinu sínu, ekki langt þangað til hún snýr sér yfir á magann.
Við eignuðumst litla jólafrænku í gær...innilegar hamingjuóskir með hana elsku Anna Fanney, Halli og Oddur! Alltaf gaman að þessum jólakrílum ;o)
Gleðileg jól öllsömul!
Litli guttinn minn orðinn 6 ára...Björg

Já, tíminn flýgur svo sannarlega.
Finnst svo stutt síðan ég rölti inn á fæðingardeild, lagðist á bekk og vúpsa...út kom þessi líka fullkomni litli gutti. Einföld lýsing á fyrirfram plönuðum keisara, en stundum er bara betra að einfalda hlutina aðeins.
Kristófer fór með muffins á leikskólann í morgun og kom heim með handmálaða könnu frá leikskólakennurunum sínum og öllum krökkunum á deildinni hans.
Svo nú tekur gjafaflóðið við...fyrst gjafir heima hjá pabba hans, svo fleiri gjafir hér á mánudaginn (þegar hann kemur til okkar) og svo eru það jólin nokkrum dögum seinna. Púha...það getur verið full vinna að eiga afmæli í desember ;O)
